Vörumerkið Brandtex er selt í meira en 2500 verslunum um allan heim, vörumerkið tilheyrir BTX Group sem er einn af stærstu tískuframleiðendum í Danmörku. BTX Group hefur verið leiðandi á Norðurlöndunum á sviði vörumerkja og fatnaðar fyrir konur. Vörumerkið Brandtex var fyrst stofnað árið 1935 af Anne og Aage Petersen upprunalega var Brandtex barnaföt enn með árunum hefur Brandtex þróast í nútíma, litríkan gæða kvenfatnað.
Hægt er að lesa meira um BTX Group hér: https://btx-group.com/en/
Brandtex fatnaður einkennist af einstaklega fallegum nútíma stíl, hann er stílhreinn, litríkur með áherslu á gæði og kemur í stærðunum 36-52. Brandtex veitir því konum einstakt tækifæri til að klæðasta fallegum, stílhreinum og nútímalegum fatnaði óháð lögun og stærð.
Í versluninni fást vörumerkin Brandtex CLASSIC, Brandtex COPENHAGEN, Brandtex COASTLINE, SIGNATURE, JENSEN og SHARE.
Brandtex CLASSIC leggur áherslu á gamla góða hefðbunda Brandtex stílinn.
Brandtex COPENHAGEN minnir einna helst á fallegan og smart borgarstíl sem höfðar oftar en ekki til aðeins yngri markhóps.
Brandtex COASTLINE hentar einstaklega vel fyrir konur sem stunda útiveru þar er lögð er áhersla á gæðalegar yfirhafnir og þykkar peysur.
SIGNATURE leggur áherslu á mynstraðan og litríkan klæðnað
JENSEN leggur áherslu á einfaldleikann og býður upp á fallegan hversdagsfatnað
SHARE leggur áherslu á stílhreinar og fallegar dragtir í mörgum sniðum
Við viljum að heimsóknin þín sé sem best. Þess vegna notum við vafrakökur til að muna stillingar og skilja betur hvernig vefverslunin okkar er notuð — svo við getum bætt hana fyrir þig. Ef þú samþykkir leyfirðu okkur að vinna með gögn eins og hegðun í vafra á þessari síðu. Þú ræður alltaf, og getur breytt eða dregið samþykki til baka hvenær sem er.